ANNA
lørdag, maj 05, 2012
søndag, september 05, 2010
mandag, juli 20, 2009
Mánudagur
Mánudagur og brátt Mærudagar. "Allt að koma að sunnan", ekki slæmt!

Baughóllinn tilheyrir bleika hluta bæjarins.

lørdag, juli 18, 2009
fredag, april 24, 2009
Það er komið sumar

Það er komið sumar og sól í heiði skín
Vetur burtu farinn og tilveran er fín...
Ég er að leggja lokahönd á „medduna“ mína. Gæti kláraða hana í dag EF ég væri ekki gædd þeim hæfileika að finna mér eitthvað annað til dundurs á ögurstundum. Sat og saumaði út í morgun t.d.

Það er dumbungur í lofti og ekki vitundarögn sumarlegt um að litast. Unglingurinn sefur en annars er allt venjulegt fólk í vinnu og skóla. Hér er aftur á móti búið að lána íþróttaálfum landsins skólann svo við sem venjulega væflumst þar erum í fríi. Nú geng ég frá saumadótinu og klára ritgerðina, og þó, jafnvel, humm, ég ætti kannski frekar að baka pönnukökur handa mínum og svo........
Gleðilegt sumar

tirsdag, april 14, 2009

Æi, dæs......Nú eru þau öll farin eitthvað suður á bóginn.
Páskafríið búið, það snjóar ennþá og hnéð ekkert skárra.

Við lúpínurnar erum búnar að setja niður fjöldann allan af fræjum.Í gær fórum við í leiðangur. Mismunuðum nokkrum svörtum og laumuðumst með þá heim á aðalssetrið Haganes. Fengum við það búið agarlega sektarkennd sem leiddi til áframhaldandi göngu allt þar til á vegi okkar varð maður af indíána ættbálki. Maður þessi er í sterkum tengslum við náttúruna og frumöfl hennar. Þegar hann hafði lagt blessun sína yfir "bakkalánið" stigum við lúpínurnar léttan dans og hófumst handa við niðursetningu.

søndag, april 12, 2009
Hring eftir hring
Páskafríið hófst með söng og spili Ax og My. Þau æfðu lagið Shining light, upphaflega með hljómsveitinni Ash en í nýlegum flutningi söngkonunnar Annie Lennox sem ég hef mikið dálæti á. Við erum búin að vera með þetta lag á heilanum allt fríið. Ég man páskana fyrir tíu árum. Sólin skein og ég fór í fyrsta skipti á gönguskíði. Ég fékk skíðin lánuð hjá Pálu og skórnir voru númeri of litlir en ég lét það ekki á mig fá því það var svo gaman að þramma um á Botnsvatni. Þegar farið var að grafa í hælsárum sem þröngir skórnir ollu neyddist ég til að hætta, á toppnum. Ég man líka páskana fyrir fimm árum því þá fórum við María í píslagönguna upp í Mývatnssveit. Sólin skein allan daginn. Við strunsuðum hringinn því María er keppnismanneskja en skakklöppuðumst hlaupandi í mark þar sem við gátum ekki gengið lengur. Það var frábær dagur. Þessa páskana hefur ekki verið sól en við höfum gengið töluvert. Líkt og aðra daga ársins og eins og rollur í rétt höfum við mátt ganga sama hringinn í bænum. Ég er orðin leið á þessum hring, þrái að losna við snjóinn og stækka sjóndeildarhringinn. Það fer allt í hringi og ég geng í hringi.
Ég ætla að ganga mikið í sumar. Fram til þessa hef ég ekki gengið langt né markvisst. Bara gengið til þess að ganga og vera úti, upp á Húsavíkurfjall, upp á Reykjaheiði, yfir Tunguheiði, fjörurnar hérna í kring, niður með Laxá og upp að Botnsvatni. Nú er kominn tími til að stækka hringina og það ætla ég að gera í sumar. Og sumarið má alveg fara að koma fyrir mér.

Abonner på:
Opslag (Atom)

Unaós - Brúnavík- Njarðvík -Bakkagerði + Borgarfjörður - Húsavík - Loðmundarfjörður -Egilsstaðir - Húsavík ......
Geldingahnappur, Holtasóley, Gleymérei, Smjörblóm, Dýragras, Hvítmaðra, Gulmaðra, Fjalldalafífill, Vallhumall, Músareyra, Kornsúra, Bláklukka ............